Um okkur

Þjónusta sem skarar fram úr

Fjölprent var stofnað árið 1955 og hóf að sinna óskum viðskiptavina með framleiðslu á sérmerktum útifánum, borðfánum, silkiprentuðum miðum, skiltum og bílamerkingum. Starfsemin óx og dafnaði og gegnum árin hafa fjölmörg fyrirtæki, stofnanir og félög notið þjónustunnar og skartað  fánum og öðrum áprentuðum vörum frá Fjölprenti.

Fjölprent sérhæfir sig í prentun fána, merkinga og skilta

Framleiðsla á margvíslegum vörum með bleksprautuprentunum er kjarninn í starfseminni. Fjölprent kemur til móts við þá sem vilja einfalda pöntunarferlið og nýta sér Netið. Á vefsíðu Fjölprents geta viðskiptavinir því hannað og pantað vörur sjálfir. Fjölprent er eina fyrirtækið í sínum geira sem býður upp á slíka þjónustu. Starfsmenn og eigendur Fjölprents búa að mikilli reynslu en jafnframt hefur fyrirtækið tileinkað sér nýja tækni og aðferðir sem hafa komið til á allra síðustu árum. Hjá Fjölprenti fá viðskiptavinir allt það besta sem nútímalegir stafrænir bleksprautuprentarar hafa upp á að bjóða. Fjölprent er fyrirtæki með traustar rætur og getu til að tileinka sér nýjungar. Starfsemi Fjölprents byggir á langri reynslu við að þjónusta jaft stóra sem smáa viðskiptavini.

Starfsfólk

Ragnar Másson

Framkvæmdastjóri - Sölumaður

Hilmar Daði

Verkstjóri

Marcin

Framleiðsla

Garðar Jónsson

Uppsetningar

Tung

Uppsetningar

Pétur Harðarson

Grafíkdeild

Sandra

Grafíkdeild

Hákon Freyr

Bókhald
Shopping Cart
0
    0
    Karfan þín
    Karfan þín er tómAftur í verslun
      Bæta við afsláttarkóða