Ljósaskilti

Ljóaskilti sem vekja athygli – allan sólarhringinn!

Ljóaskilti eru ein besta leiðin til að tryggja sýnileika fyrirtækisins þíns, bæði í dagsbirtu og myrkri. Með vönduðum efnum og öflugri LED-lýsingu tryggjum við endingargóð skilti sem vekja athygli og styrkja ímynd fyrirtækisins. Við sérsníðum lausnir fyrir þínar þarfir – hvort sem það er framlýst, baklýst eða fram- og baklýst skilti. Látum þitt fyrirtæki skína!

Tegundir ljósaskilta

Framlýst skilti

Framlýst ljósaskilti eru algengasta tegund ljósaskilta og bjóða upp á frábæra sýnileika, bæði í myrkri og úr mikilli fjarlægð. Framhlið skiltisins er gerð úr hálfgegnsæju akrýli sem dreifir ljósinu jafnt og lýsir upp skiltatextann eða merkið. Akrýlefnið er fáanlegt í fjölmörgum litum, sem gerir kleift að aðlaga útlitið að vörumerkinu þínu.

Baklýst skilti

Baklýst ljósaskilti, einnig kölluð „halo“ ljósaskilti, skapa einstakt og glæsilegt útlit með því að láta ljósið skína út frá bakhlið skiltisins. Framhlið og hliðar eru úr áli, en bakhliðin er úr gegnsæju eða hálfgegnsæju akrýli sem dreifir ljósinu. Við uppsetningu eru millistykki notuð til að halda skiltinu frá veggnum, sem myndar fallegan ljómahjúp í kringum merkið og gefur því fljótandi áhrif.

Fram- og baklýst skilti

Fram- og baklýst ljósaskilti sameina tvo lýsingarstíla í einu skilti, þar sem ljós skín bæði í gegnum framhliðina og bakhliðina. Þetta gerir kleift að velja tvo mismunandi liti – einn fyrir framlýsingu og annan fyrir baklýsingu. Þessi litaskipting getur skapað sterk sjónræna áhrif og aukið læsileika skiltisins í myrkri. Til dæmis gæti blár litur verið áberandi yfir daginn en erfitt að lesa að kvöldi. Með því að bæta við hvítri baklýsingu fæst betri sýnileiki að nóttu til og skiltinu er tryggð hámarksáhrif allan sólarhringinn.

Finndu rétta ljósaskiltið fyrir þig!

 

Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval ljósaskilta sem henta mismunandi aðstæðum og þörfum. Hér að neðan geturðu skoðað allar tegundir sem við bjóðum upp á –með myndum af skiltunum í dagsbirtu og myrkri (renndu sleðanum yfir myndina til að sjá hvernig skiltin líta út í dagsbirtu og myrktri).
Smelltu á viðeigandi flokk til að sjá mismunandi útfærslur!

Framlýst ljósaskilti með kanti eru ein algengasta lausnin í ljósaskiltum. Hver stafur er sjálfstæð eining, þar sem hliðar eru mótaðar úr álrenningum til að mynda nákvæmt form. Framhliðin er skorin út úr hvítu ljósaplexígleri sem dreifir birtunni jafnt. Til að ná fram mismunandi litum er hægt að líma ljósafilmur yfir framhliðina eða nota litað plexígler. LED-lýsing er fest á sérsniðna bakplötu úr PVC eða dibond plötum sem tryggir jafna og skýra lýsingu. Framlýst skilti eru öflug lausn fyrir fyrirtæki sem vilja að merkingar þeirra séu áberandi bæði að degi og nóttu.

Framlýst skilti án kants er glæsilegt ljósaskilti þar sem ál er mótað í það form sem óskað er eftir. Framhliðin er skorin úr 10 mm plexígleri og nær yfir brúnir álrammans, sem skapar fágað og samfelld útlit.

Þessi hönnun tryggir að allur framflötur skiltisins sé upplýstur, sem gefur því fínlegt yfirbragð án sýnilegs ramma eða kanta. Með því að leggja filmu yfir miðju formsins má skapa sérstakan ljóseffekt þar sem útlínur skiltisins ljóma og minna á klassísk neonskilti.

Baklýstir stafir eru svipaðir framlýstum stöfum, en með þeim mun að framhliðin er úr áli og bakhliðin úr plexi. Innri lýsingin er lýsir aftur á bak og lýsir upp vegginn þar sem stafirnir eru festir um tvo sentímetra frá yfirborðinu. Þessi lýsingaraðferð myndar áberandi ljóma utan um stafina í myrkri, sem gefur skiltinu einstakt útlit.

Baklýstir stafir með halo eru svipaðir baklýstum stöfum, en með þeim mun að framhliðin er úr áli en bakhliðin og hluti hliðanna eru úr plexi. Innri lýsingin er lýsir aftur á bak og til hliðar sem lýsir upp vegginn og hliðar þar sem stafirnir eru festir um tvo sentímetra frá yfirborðinu. Þessi lýsingaraðferð myndar áberandi ljóma utan um stafina í myrkri, sem gefur skiltinu einstakt útlit.

Fram- og baklýstir stafir eru með plexi framhlið og bakhlið á meðan hliðar eru úr áli. Þetta skapar bæði upplýstan framflöt og fallegan ljóma utan um stafina. Þessi áhrifaríka lýsingaraðferð dregur strax augað að skiltinu og tryggir að fyrirtækið þitt vekur athygli, bæði dag og nótt.

Fram- og baklýstir stafir eru með plexi framhlið, bakhlið og hluta af hliðinni á meðan hliðar eru úr áli. Þetta skapar bæði upplýstan framflöt og fallegan ljóma utan um stafina. Þessi áhrifaríka lýsingaraðferð dregur strax augað að skiltinu og tryggir að fyrirtækið þitt vekur athygli, bæði dag og nótt.

Fram- og hliðarlýstir stafir eru einstaklega áberandi lausn þar sem LED-lýsing er innbyggð í plexi skel stafanna. Bæði framhlið og hliðar skiltisins lýsast upp, sem skapar bæði skært og fallegt ljómaáhrif. Þessi gerð skilta er hentug bæði fyrir innan- og utanhússnotkun.

Hliðarlýstir stafir eru glæsileg og stílhrein lausn þar sem aðeins jaðrar stafanna eru upplýstir. Stafirnir eru unnir úr plexi, CNC-fræstir úr áli sem er málað í þeim lit sem á við. LED-ljósin eru innbyggð í skel stafanna og skapa einstaka birtu sem dregur fram lögun og skilaboð skiltisins.

Kassi með framlýstum stöfum sameinar áhrifaríka framhliðar- og hliðarlýsingu fyrir einstakt útlit.

Stafirnir eru fræstir úr þykku plexígleri og koma í gegnum sérsniðnar raufar á kassanum. Á framhlið stafanna er límd filma í þeim lit sem óskað er, sem tryggir skarpa og bjarta framlýsingu. Hliðarnar dreifa ljósinu mjúklega út til beggja hliða, sem skapar fallegt birtu í kringum letur eða lógó og eykur sýnileika skiltisins enn frekar.

Ljósakassar eru frábær lausn þegar lýsa á upp stóran flöt og tryggja að skiltahönnunin njóti sín til fulls. Með framlýstum prentuðum fleti er hægt að nýta allt litrófið og draga fram jafnvel fínustu smáatriði. Þessi skiltategund er einföld í uppsetningu og hagkvæmari en margar aðrar lausnir, auk þess sem hún býður upp á mikla sveigjanleika þegar kemur að því að uppfæra grafíkina.

Ljósakassinn er gerður úr áli með LED lýsingu í botninum, sem tryggir jafna og sterka lýsingu. Framflöturinn getur verið úr segldúk, taui eða ljósaplasti, þar sem prentuð  grafík er sett á með límfilmu til að ná fram skýrum og áberandi myndum eða texta.

Tengdar vörur

Neon skilti

Fræst skilti

Plexi skilti

Ál skilti

Hafðu samband

Drag & Drop Files, Choose Files to Upload
Shopping Cart
0
    0
    Karfan þín
    Karfan þín er tómAftur í verslun
      Bæta við afsláttarkóða