Fræst skilti
Fræst skilti eru vinsæl lausn fyrir merkingar fyrirtækja og hafa fjölbreytta möguleika til að mæta þínum þörfum. Við getum sérsniðið þau í hvaða stærð eða form sem þarf til.
Fræst skilti bjóða upp á meira 3D útlit en prentuð skilti og eru því frábær kostur fyrir þá sem vilja skera sig úr. Þessi skilti eru framleidd úr mismunandi efnum eins og plexi, áli eða PVC, þannig getum við valið það efni sem hentar þínum þörfum best.
Fræstir stafir eða merki eru mjög árangursrík og ódýr leið til að gera skiltið þitt eftirtektarvert á ódýran máta. Fræst merki eru ódýrari en hefðbundin ljósaskilti en líta samt frábærlega út og hjálpa til við að búa til eftirtektarverð og áhrifarík skilti. Við getum framleitt fræst merki úr ýmsum efnum (ál, plexi, og PVC) með valkostum sem henta öllum þörfum. Við bjóðum einnig upp á mismunandi festingaraðferðir fyrir fræst merki eins og double teip eða blindtappa til að tryggja að þú fáir bestu aðferðina sem hentar merkinu þínu.
PVC stafir og merki eru algengasta útfærsla fræstra skilta. Þau koma í ýmsum þykktum og hafa óteljandi notkunarmöguleika.
Þau eru annaðhvort sprautuð eða filmuð með litafilmu.
Þykktir: 3-5-10-19 mm
Frágangur – Límfilma eða sprautað
Festing – Blindtappar, double teip eða leiðari
Plexigler er glært, létt og slitsterkt efni sem hentar vel fyrir fræst skilti með skörpum og fíngerðum útlínum. Það býður upp á glansandi yfirborð og gefur merkingum nútímalegt og faglegt útlit, hvort sem það er litað eða glært plexiglerið.
Þykktir: 3-5-10 mm
Frágangur – Límfilma
Festing – Blindtappar, double teip eða leiðari
Ál er sterkt og létt efni sem hentar frábærlega í fræst skilti fyrir bæði inni- og útinotkun. Það hefur fágað útlit og er ryðvarið, sem tryggir langan líftíma jafnvel við krefjandi aðstæður. Álskilti eru tilvalin fyrir fyrirtæki sem vilja vandaða og varanlega merkingu.
Þykktir: 2 mm
Frágangur – Límfilma eða sprautað
Festing – Blindtappar, double teip eða leiðari
Dibond er samsett efni með ályfirborði og sterkan pólýetýlen kjarna, sem gerir það bæði létt og einstaklega endingargott. Það er frábært val fyrir fræst skilti sem þurfa að þola veðrun án þess að beygjast eða aflagast. Dibond er vinsælt fyrir bæði veggskilti og útiskilti þar sem varanleiki skiptir máli.
Þykktir: 3 mm
Frágangur – Límfilma eða sprautað
Festing – Blindtappar, double teip eða leiðari
Áberandi skilti með dýpt
Fræst skilti gefa hágæða áferð og þrívídd sem lyftir merkingum upp á næsta stig. Með því að skera út stafi eða lógó úr efni eins og plexigleri, áli eða Dibond fæst skýrt og stílhreint útlit sem hentar jafnt fyrir fyrirtæki, verslanir og veitingastaði.
Leikandi létt og litrík merking
Ef þú vilt skemmtilegt og líflegt útlit er hægt að nota óhefðbundið letur og sterka liti til að skapa eftirminnilega framsetningu – fullkomið fyrir verslanir, veitingastaði eða fyrirtæki. Þykkari efni auka enn frekar á þrívíddaráhrifin og gera skiltið meira áberandi.
Sveigjanleg uppsetning og fjölbreytt festing
Fræst skilti er hægt að festa beint á vegg eða á bakplötu úr Dibond eða PVC fyrir skýra afmörkun. Til að ná enn sterkari þrívíddaráhrifum er hægt að nota stand-off festingar, sem láta stafina „svífa“ frá veggnum.
