Skilti

Storefront with sign 'GRYFJAN'

Ljósaskilti

Ljóaskilti eru ein besta leiðin til að tryggja sýnileika fyrirtækisins þíns, bæði í dagsbirtu og myrkri.

Fræst skilti

Fræst skilti eru vinsæl lausn fyrir merkingar fyrirtækja og hafa fjölbreytta möguleika til að mæta þínum þörfum. Við getum sérsniðið þau í hvaða stærð eða form sem þarf til.

Gorilla store sign on wall
Black sign with gold geometric design

Plexi skilti

Plexi skilti eru úr glærum og gegnsæjum plexi plötum sem er ákjósanlegur valkostur í staðinn fyrir hefðbundið gler. Vegna gegnsæis og endingu eru þau oft notuð sem móttöku-, leiðsagnar – og skrifstofuskilti.

Foam skilti

Foam skilti eru létt en stöðug skilti úr frauðkjarna með sléttu og hörðu yfirborði. Þau eru tilvalin fyrir innanhússnotkun, þar sem þau birta hágæða prentun með skörpum litum og skýrum skilaboðum.

Close-up of a foam board edge
Colorful flower design on material

PVC skilti

PVC skilti eru frábær lausn fyrir þá sem vilja endingargóð, hagkvæm og fjölhæf skilti sem henta bæði innan- og utandyra. Þau eru sterk og veita áreiðanlega merkingu í langan tíma með réttri umhirðu.

Ál skilti

Álskilti eru einstaklega endingargóð og fjölhæf lausn fyrir bæði innanhúss og utanhúss notkun. Þau eru annaðhvort úr álplötum eða dibond plötum sem eru tvær þunnar álþynnur með sterkan plastkjarna, sem gerir þau létt en um leið afar stöðug og veðurþolin.

Stylized sign with abstract design
Pink neon sign with cursive lettering

LED neon skilti

LED neon skilti eru fullkomin lausn fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem vilja skapa eftirminnilega ásýnd og grípa athygli með skærri og fallegri lýsingu. Þessi skilti sameina útlit klassískra neonljósa við nútímalega LED-tækni, sem gerir þau bæði endingargóð, orkusparandi og öruggari í notkun.

Bílastæðaskilti

Bílastæðaskilti geta verið nauðsynleg á bílastæðum þar sem afmarka þarf einkastæði fyrir ákveðna íbúa, hús, fyrirtæki eða stofnanir. Skiltin eru framleidd áli og endurskinsfilmu með plastvörn fyrir aukna endingu.

Parking sign with car illustration
Library directional signage with categories

Skiltakerfi

Innanhús skiltakerfi eru mikið notuð og í raun nauðsynleg leið til að leiðbeina og upplýsa fólk um stærri fyrirtæki, stofnanir, flugvelli, spítala, verslunarmiðstöðvar og fjölbýlishús svo eitthvað sé nefnt.

Shopping Cart
0
    0
    Karfan þín
    Karfan þín er tómAftur í verslun
      Bæta við afsláttarkóða