Sýningarlausnir

Hvort sem þú ert á sýningu, ráðstefnu eða kynningarviðburði, skiptir máli að fyrirtækið þitt standi upp úr og skilji eftir sterk áhrif. Við bjóðum upp á hágæða kynningarlausnir sem vekja athygli og hjálpa þér að miðla skilaboðum þínum á áhrifaríkan hátt.

Mikilvægi sýningarlausna

 

Ætlar þú að vera með bás á sýningu á næstunni og vilt gera þinn bás að vinsælum viðkomustað gesta? Sýningarlausnir frá Fjölprenti eru hannaðar með það í huga að gera þinn bás eftirtektarverðan og spennandi. Vel hannaður og fallegur sýningarbás sýnir fagmennsku og eykur traust á fyrirtækinu sem hann stendur fyrir. 

Að vera með réttar sýningarlausnir og merkingar skiptir höfuðmáli þegar kemur að því að laða að gangandi sýningargesti. Það þarf að undirstrika hvað er einstakt við þitt fyrirtæki, upplýsingar þurfa að vera auðskiljanlegar, fallegar að horfa á og skilja eitthvað eftir í huga gestanna. Allt frá stórum ljósmyndaveggjum að nútíma húsgögnum þá bjóðum við upp á allt sem til þarf til að gera þinn bás að vinsælum viðkomustað sýningargesta.

 

Bakgrunnsveggir

Í allri ringulreiðinni sem á sér stað á sýningum og vörukynningum þá er auðvelt að týnast í fjöldanum. Stattu út úr með sérmerktum ljósmyndavegg sem rammar inn þinn stand og kemur mikilvægum skilaboðum á framfæri. Allir okkar ljósmyndaveggir eru prentaðir í hámarks upplausn sem gerir þinn sýningarstand eftirtektarverðan og faglegan.

Veggirnir eru hannaðir fyrir langtíma og endurtekna notkun. Þeir eru sjálfstandandi ásamt því að vera léttir og meðfæranlegir. 

Fjölprent býður upp á bæði tauveggi og segl veggi, sem hægt er að fá með eða án LED lýsingar.

Kynningarborð

Kynningarborðin frá Fjölprenti veita meðfærilega og hentuga lausn fyrir vörukynningar í verslunum sem og hluta af kynningarstandi á vörusýningum. Kynningarborðin eru afar einföld og fljótleg í uppsetningu. Einungis tekur nokkrar mínútur að setja borðin upp og pakka þeim saman. Borðin pakkast saman í handhæga geymslutösku sem tekur lítið pláss. Borðin afhendast með merkingu sem hægt er að skipta út að vild til að auglýsa það sem er verið að kynna hverju sinni.

Hægt er að fá borðin heil með merkingu allan hringinn, hol að innan eða með geymsluhillum fyrir vörur og bæklinga.

Gólfmerkingar

Gólfmerkingar eru öflugt verkfæri til að ramma inn bása og afmarka svæði fyrirtækja á vörusýningum og ráðstefnum. Þær skapa skýra afmörkun, auka sýnileika og leiða gesti beint að þínu svæði, en gegna einnig lykilhlutverki í að styrkja vörumerkið og gera það eftirminnilegt í huga gesta. Með sérsniðnum gólfmerkingum er hægt að draga athygli að básnum, aðgreina hann frá öðrum og tryggja að gestir upplifi skipulag og fagmennsku. Vel hönnuð merking getur einnig beint umferð að mikilvægum svæðum eins og afgreiðslu, sýningarsvæði eða kynningaraðstöðu, sem einfaldar upplifun gesta og eykur áhrif viðveru fyrirtækisins.

Við bjóðum upp á fjölbreyttar lausnir sem henta öllum sýningarrýmum, þar á meðal slitsterkar og hálkuvarðar límmiða sem þola bæði innandyra og útisvæði, tímabundnar merkingar sem auðvelt er að fjarlægja að viðburði loknum sem skapa einstaka sjónræna upplifun og vekja forvitni. Sérsniðnar lausnir tryggja að lógó, slagorð og litir fyrirtækisins njóti sín sem best og stuðli að samræmdri ásýnd. Gólfmerkingar eru ekki aðeins áhrifarík leið til að ramma inn svæði, heldur einnig til að bæta aðdráttarafl, auka vörumerkjavitund og leiðbeina gestum á skilvirkan hátt.

Leggðu áherslu á sérstöðu fyrirtækisins þíns og skerðu þig úr á meðal samkeppnisaðila. Þekktu það sem gerir þig einstakan og láttu það njóta sín í hönnun sýningarbásins. Sýndu á skýrann hátt af hverju viðskiptavinir ættu að heimsækja sýningarbásinn þinn með því að undirstrika sérstöðu þína og gæði.

Tengdar vörur

  • Kynningarlausnir

    Ljósastandur

    Price range: 49,800 kr. through 173,800 kr. með vsk. Byrja að hanna This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
  • Kynningarlausnir

    Lukkuhjól

    Frá Byrja að hanna
  • Kynningarlausnir

    Roll Up

    Price range: 14,000 kr. through 35,900 kr. með vsk. Byrja að hanna This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
  • Fánar

    Strandflagg

    Frá kr. Byrja að hanna

Hafðu samband

Drag & Drop Files, Choose Files to Upload
Shopping Cart
1
  • Vöru bætt í körfu
1
Karfan þín
Strandflagg
Verð:kr.
- +
kr.
    Bæta við afsláttarkóða