Speglafilmur
Spegilfilma er frábær lausn fyrir þá sem vilja auka næði, minnka hitamyndun og bæta útlit bygginga. Með speglandi yfirborði kemur hún í veg fyrir að utanaðkomandi sjái inn á daginn, á meðan þú nýtur óskertrar dagsbirtu innan frá. Hvort sem um er að ræða heimili, skrifstofur eða verslanir, þá tryggir spegilfilma betra rými með meiri persónuvernd og þægilegri innivist.
Hægt er að fá sýnishorn af filmunum hjá okkur að Norðlingabraut 14 eða fengið þau send.
Uppsetning er í flestum tilvikum í okkar höndum en þú getur einnig pantað og sett upp sjálf/sjálfur.
Frá 0 kr.
Upplýsingar
Hvar eru notaðar speglafilmur?
Heimili
Fullkomið fyrir glugga sem snúa að götum eða nálægum byggingum.
Skrifstofur
Auktu næði og bættu vinnuumhverfi með minna sólarljósi og minni glampa.
Verslanir og veitingastaðir
Gefur glæsilegt og nútímalegt útlit á sama tíma og hún verndar gegn óþarfa hita.
Heilbrigðisstofnanir
Veitir næði fyrir sjúklinga og starfsfólk án þess að draga úr birtu.




