Útifánar eru ein vinsælasta og áhrifaríkasta leiðin til að kynna fyrirtæki, viðburði eða vörumerki. Fánarnir eru prentaðir á hágæða, vottaðan textíl úr 100% pólýester með háþróaðri bleksprautuprentun. Þessi prentunaraðferð tryggir djúpa og skæra liti sem þola vel veðrun, þar á meðal UV-geisla, svo fáninn helst fallegur lengur.
Þegar prentaðir eru útifánar eru tvær tegundir efnis í boði, annars vegar gatað fánaefni og hins vegar heilt fánaefni. Gataða fánaefnið er algengara og skilar betri endingu þar sem götin í efninu hleypa vind í gegnum sig og slær því fáninn minna. Heila efnið skilar smáatriðum betur og nýtist því vel ef mikið er um smáatriði í prentuninni.
Liturinn er prentað á efnið og svo hitað beint inn í efnið, sem gerir prentið bæði sveigjanlegt og slitsterkt. Fánarnir verða ekki stífir, brotna ekki auðveldlega og er hægt að brjóta þá saman án þess að skemma prentið, sem auðveldar geymslu og flutning. Einnig er hægt að þvo og strauja fánana eftir þörfum.






