Skilmálar
Afhending/afgreiðslutími
Eftir að pöntun berst tekur framleiðsluferli ekki lengur en 5 virka daga. Sé um mjög stórar pantanir að ræða gæti framleiðsluferlið tekið lengri tíma, komi til þess verður viðskiptavinurinn látinn vita.
Verð vöru, virðisaukaskattur og auka kostnaður.
Öll verð á síðunni eru birt ÁN virðisaukaskatts.
Virðisaukaskatturinn bætist við í sér línu þegar vara eða vörur eru settar í körfu. Enginn auka kostnaður bætist við vörur við kaup annar en lögbundinn virðisaukaskattur.
Vöruskil og endurgreiðslur
Fjölprent vinnur eftir gæðastöðlum sem tryggja að þú fáir nákvæmlega það sem þú pantar. Að sjálfsögðu geta mannleg mistök alltaf orðið og varan sé ekki alveg eins og þú ætlast til. Komi til þess þarftu ekki að hafa neinar áhyggjur, við leysum málið. Lesa meira
Ábyrgðarskilmálar
Full framleiðsluábyrgð er vegna galla á efni og vinnu á vörum Fjölprents. Ef vara telst gölluð förum við eftir neytendalögum. Athugið að ábyrgðin nær ekki til tjóns sem hlýst af slysi, þvotti, vanrækslu, venjulegu sliti eða eðlilegu litatapi sem verður við notkun og eða sökum aldurs vörunnar.
Afhendingarskilmálar
Um leið og Íslandspóstur tekur við pöntuninin til flutnings, er pöntunin á ábyrgð kaupanda. Íslandspóstur býður upp á tryggingargjald í sendingu óski kaupandi eftir því.
Afhendingarmáti
Fjölprent býður upp á að pöntun sé sótt til okkar í Fjölprent að Norðlingabraut 14. Einnig er heimsending í boði á öllum pöntunum.
Heimsending er upp að dyrum þar sem Íslandspóstur býður uppá það, annarstaðar er pöntunin send á næsta pósthús.
Afhendingartími
Við gefum okkur allt að 5 daga til að framleiða vöruna og senda hana af stað. 2-3 daga getur tekið Íslandspóst að keyra vöruna til þín á höfuðborgarsvæðinu og 3-5 daga á dreifð býli og sveitir.
Flutningsaðili
Við notumst við heimsendingu með Íslandspósti fyrir allar okkar sendingar.