Útifánar
Það er í eðli mannsins að taka eftir hlutum sem eru á hreyfingu. Þegar eitthvað hreyfist óvænt dregst athygli okkar samstundis að hlutnum sem er á hreyfingu.
Þetta eðli mannsins er ástæðan fyrir því að blaktandi útifánar eru svona áhrifarík aðferð til að auglýsa. Fjölprent býður upp á fána í öllum stærðum og er markmið okkar að prenta ávalt á allra bestu efni sem í boði eru.
Þegar prentaðir eru útifánar eru tvær tegundir efnis í boði, annars vegar gatað fánaefni og hins vegar heilt fánaefni. Gataða fánaefnið er algengara og skilar betri endingu þar sem götin í efninu hleypa vind í gegnum sig og slær því fáninn minna. Heila efnið skilar smáatriðum betur og nýtist því vel ef mikið er um smáatriði í prentuninni.
Þú getur hannað þína fána á síðunni okkar, það er ekki bara skemmtilegt heldur einnig afar einfalt.
Við notum eingöngu bestu mögulegu efnin
Hannaðu þína fána
Þú getur hannað þína fána í hönnunartólinu og gengið frá pöntun á einfaldan og fljótlegan hátt.
Smelltu á takkan hér að neðan til að hanna og panta þína fána.